Hraðþjónusta fyrir alla bíla
Hraðþjónusta MAX1 Bílavaktarinnar er bílaþjónusta fyrir allar tegundir bíla.
Við leggjum áherslu á að þjónusta viðskiptavini okkar á framúrskarandi hátt á öllum sviðum svo samgöngutæki heimilisins og vinnustaðarins sé í topplagi. Öll verkstæði MAX1 eru aðilar BGS, Bílgreinasambandsins.
Hjá MAX1 Bílavaktinni færð þú margvíslega bílaþjónustu, m.a. geturðu keypt ný dekk og fengið umfelgun, látið smyrja bílinn eða skipta um rafgeymi, lagað bremsur og skipt um dempara. Bílaþjónusta MAX1 sér einnig um smáviðgerðir eins og bílaperur og peruskipti, rúðuþurrkur og að sjálfsögðu bætum við á rúðuvökva. Smáviðgerðir hjá MAX1 felast einnig í öðrum minniháttar viðvikum, t.d. að skipta um rafhlöður í fjarstýringum, liðka upp frosnar læsingar og festa aurhlífar, svo fátt eitt sé nefnt. Fyrir stærri bílaviðgerðir þá mælir MAX1 með Vélalandi bílaverkstæði.
BÓKAÐU TÍMA |
AFBÓKA |
Ódýrir varahlutir lækka verð bílaþjónustu
Þegar þú nýtir þér bílaþjónustu MAX1 Bílavaktarinnar þá útvegar MAX1 ódýra varahluti í verkið en um leið tryggir MAX1 rétt gæði varahluta og ábyrgð. Samstarfsaðilar MAX1 eru fjölmargir. Dekkin koma frá finnska dekkjaframleiðandanum Nokian, smurolíurnar frá Olís, rafgeymarnir frá Exide, þurrkublöðin frá Trico og varahlutir koma ýmist beint að utan, frá bílaumboðum eða ýmsum birgjum innanlands eins og Poulsen, Stillingu, AB Varahlutum, Bílanaust og fleirum. Ef þú vilt sjálfur útvega varahlutina í verkið er það alveg sjálfsagt mál. Þitt er valið - okkar er þjónustan.
Hröð og örugg bílaþjónusta í næstum tvo áratugi
MAX1 Bílavaktin var stofnuð 1. nóvember árið 2000 og hefur fyrirtækið þróast og vaxið jafnt og þétt á þeim tæpu tveimur áratugum sem við höfum veitt bíleigendum ódýra og hraða bílaþjónustu.
MAX1 dregur nafn sitt af því markmiði okkar að klára hvern verkþátt á innan við klukkustund eftir að við hefjumst handa.
Verðstefna okkar þýðir að þú veist alltaf hvað viðgerðin kostar áður en við byrjum.
Hjá MAX1 starfa vel þjálfaðir og reynslumiklir starfsmenn. Bíllinn þinn er í hröðum og öruggum höndum hjá okkur. Komdu núna eða pantaðu tíma fyrir bílaþjónustu hjá MAX1 Bílavaktinni.
Bílaþjónusta um allt höfuðborgarsvæðið
Stefna MAX1 er að veita bíleigendum bílaþjónustu í stuttri fjarlægð frá vinnustað eða heimili. Áhersla hefur því verið lögð á markvissa uppbyggingu nýrra verkstæða víða á höfuðborgarsvæðinu. Smelltu til að finna öll verkstæði MAX1 Bílavaktarinnar eða til að bóka tíma fyrir bílinn þinn.
BÓKAÐU TÍMA |
AFBÓKA |
Senda fyrirspurn á Jafnasel 6 |
Senda fyrirspurn á Dalshraun 5 |
Senda fyrirspurn á Bíldshöfða 5a |
SENDA FYRIRSPURN |
Bílaþjónusta og smáviðgerðir fyrir allar tegundir bíla
Bílaþjónusta fyrir Toyota - Bílaþjónusta fyrir Volkswagen - Bílaþjónusta fyrir VW - Bílaþjónusta fyrir Chevrolet - Bílaþjónusta fyrir Kia - Bílaþjónusta fyrir Skoda - Bílaþjónusta fyrir Ford - Bílaþjónusta fyrir Honda - Bílaþjónusta fyrir Renault - Bílaþjónusta fyrir Hyundai - Bílaþjónusta fyrir Mercedes Benz - Bílaþjónusta fyrir Bens - Bílaþjónusta fyrir Daihatsu - Bílaþjónusta fyrir Mazda - Bílaþjónusta fyrir Nissan - Bílaþjónusta fyrir Suzuki - Bílaþjónusta fyrir Subaru - Bílaþjónusta fyrir Audi - Bílaþjónusta fyrir Citroen - Bílaþjónusta fyrir Bmw - Bílaþjónusta fyrir Volvo - Bílaþjónusta fyrir Peugeot - Bílaþjónusta fyrir Dacia - Bílaþjónusta fyrir Opel - Bílaþjónusta fyrir Mitsubishi - Bílaþjónusta fyrir Lexus - Bílaþjónusta fyrir Isuzu - Bílaþjónusta fyrir Porsche - Bílaþjónusta fyrir Fiat - Bílaþjónusta fyrir Jeep - Bílaþjónusta fyrir Dodge - Bílaþjónusta fyrir Land Rover - Bílaþjónusta fyrir Chrysler