Mynstursdýpt dekkja
Mynsturdýpt dekkja þarf nú að vera meiri en áður samkvæmt nýrri reglugerð. Breyttar kröfur um lágmarks mynstursdýpt hjólbarða eru til komnar til að tryggja akstursöryggi og við hvetjum alla til að ganga úr skugga um að bíllinn sé löglegur í umferðinni.
Breytt lágmarks mynstursdýpt dekkja
Lágmarks mynstursdýpt dekkja samkvæmt nýju reglugerðinni sem tók gildi 1. nóvember 2014 er:
3,0 mm lágmarks mynstursdýpt yfir vetrartímann (1. nóvember - 14. apríl)
1,6 mm lágmarks mynsturdýpt yfir sumartímann (15. apríl - 31. október)
Mynstur dekkja auðmælanlegt með Nokian slitmerkingu
Nokian dekk hafa þá sérstöðu að á þeim er slitmerking sem sýnir mynstursdýptina hverju sinni. Merkingin gefur til kynna hvenær nauðsynlegt er að endurnýja dekkin til að tryggja viðunandi öryggi. Mismunandi slitmerking er fyrir vetrardekk og sumardekk. Mikilvægt er að fylgjast vel með mynstursdýpt dekkjanna til að tryggja akstursöryggi við krefjandi aðstæður.
Slitmerking Nokian vetrardekkja
Slitmerkingin er á yfirborði dekksins eins og sést á mynd hér fyrir neðan. Skalinn á slitmerkingunni byrjar í 8 sem þýðir að dekkið er með meira en 8 mm mynstursdýpt. Með aukinni notkun eykst slit dekksins og tölurnar hverfa ein af annarri, fyrst hverfur talan 8 (mynstur dekkja 8-6 mm), því næst talan 6 (mynstur dekkja 6-4 mm) og að lokum talan 4 (mynstur dekkja undir 4mm). Þegar talan 4 og snjókorna-táknið hverfa, en það gerist samhliða, mælir Nokian með að endurnýja dekkið til að tryggja viðunandi öryggi. Þó er leyfilegt samkvæmt nýju reglugerðinni að aka um að vetrarlagi á dekkjum sem hafa að lágmarki 3,0 mm mynsturdýpt.
Slitmerking Nokian sumardekkja
Slitmerking Nokian sumardekkja er sambærileg og vetrardekkja-slitmerkingin, en snjókorninu hefur verið skipt út fyrir vatnsdropa. Talan 4 og vatnsdropinn hverfa þegar mynsturdýpt er orðin minni en 4 mm. Þegar svo er komið er hætta á floti dekksins í vatni. Slíkt getur skapað mikla hættu og því mælir Nokian með að dekk sé endurnýjað á þeim tímapunkti. Þess ber þó að geta að dekkið er ekki ólöglegt fyrr en mynsturdýpt er komin niður í 1,6 mm samkvæmt reglugerð um mynsturdýpt dekkja.
Myndband sem sýnir slitmerkingu Nokian dekkja
Aukið umferðaröryggi með aukinni mynstursdýpt dekkja
Á vef Samgöngustofu segir að breytingar á reglugerðinni um mynstursdýpt dekkja séu alfarið í þágu aukins umferðaröryggis. Þær taka mið af sambærilegum reglum annars staðar á Norðurlöndum þar sem akstursskilyrði að vetrarlagi eru svipuð og hér á landi. Breytingar þessar voru unnar í fullu samráði við, t.d. lögreglu, tryggingafélög og rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Með aukinni mynstursdýpt mun veggrip hjólbarðanna aukast og hemlunarvegalengdir styttast. Þess er vænst að breytingarnar muni fækka þeim bílum sem þurfa á aðstoð að halda við minnstu breytingar á færð og jafnframt stuðla að fækkun umferðarslysa.
Hér má lesa breytingar á reglugerðinni um mynstursdýpt dekkja
Veggrip miðað við 3 mm vatnsdýpt
Sjóva hefur útbúið mynd sem sýnir áhrif mynstursdýptar og ökuhraða á veggrip (miðað við 3 mm vatnsdýpt). Þessar upplýsingar undirstrika mikilvægi þess að fylgjast vel með mynstursdýpt dekkja. Endilega kynnið ykkur myndina hér fyrir neðan.
Kynntu þér vetrardekkjatímabil, nagladekkjatímabil og sumardekkjatímabil.