Flýtilyklar
Brauðmolar
Fólksbíladekk harðkorna
Finna dekk
Opna
Nokian Hakkapeliitta R5
Nokian Hakkapeliitta R5
Nokian Hakkapeliitta R5 er harðkorna vetrardekk fyrir fólksbíla. Dekkið er frábær kostur á móti nagladekki og þar blandast saman óaðfinnanlegt grip og akstursþægindi.
Hakka Trygging® Nokian Tyres er fáanleg fyrir þetta dekk. Smelltu hér og kynntu þér Hakka Tryggingu® Nokian Tyres.
Nokian Hakkapeliitta R5 er harðkorna vetrardekk fyrir fólksbíla sem er einnig fáanlegt fyrir jeppa (R5 SUV), rafbíla og Hybrid bifreiðar (R5 EV). Dekkið er frábær kostur á móti nagladekki og þar blandast saman óaðfinnanlegt grip og akstursþægindi.
Nokian Hakkapeliitta R5 harðkorna vetrardekkið býður uppá áður óþekkt grip á ís, þægindi og aksturseiginleika sem þróaðir voru fyrir norðlægar slóðir. Dekkið er búið framúrskarandi vetraröryggiseiginleikum eftir strangar prófanir og ítarlegar rannsóknir.
- Framúrskarandi grip og jafnvægi í akstri
- Hljóðlátt
- Vistvænt og orkusparandi
Smelltu til að horfa á myndbandið:
Óaðfinnanlegt grip með Nokian Hakkapeliitta R5
Ein af öryggisnýjungum í Nokian Hakkapeliitta R5 er endurhannað mynstur dekksins. Nýtt Double Block Grip veitir óaðfinnanlegt grip í vetrarhörkum. Stíf röð af slitlagsblokkum byrjar í miðju dekksins og er skipt í tvennt og færist í átt að axlarsvæði dekksins. Hakkapeliiitta R5 er með 40% fleiri slitlagsblokkir en forveri þess og er snertiflötur þess 4% stærri sem skilar sér í betra gripi á hálum götum.
Harðkornadekk með Arctic Grip kristölum
Óaðfinnanlegt grip er tryggt með einstöku Arctic Grip kristölum. Kristölum er blandað saman við slitlagsblönduna og virka eins og innbyggðir pinnar og skapa skarpar, sterkar gripsbrúnir inn í gúmmíinu. Þegar dekkið slitnar með tímanum koma kristallarnir fram og virkja nauðsynlegt grip.
Nýtt mynstur ásamt Arctic Grip kristölunum og hönnun Double Block Grip hefur gerti Nokian kleift að auka öryggi og þægindi í akstri að vetri til. Með nýrri hönnun hefur einnig viðnám dekksins lækkað sem minnkar eldsneytiskostnað.
Nokian Hakkapeliitta R5 er hljóðlátt vetrardekk
Nokian Hakkapeliitta R5 er sérlega hljóðlátt vetrardekk. Hljóð frá dekkjum geta haft áhrif á akstursánægju og þægindi, lægri hávaði frá dekkjum gerir ferðalagið þægilegra og minnkar þreytu farþega bílsins.
Ný Silent Touch hönnun á mynstri Nokian Hakkapeliitta R5 býður uppá stöðugan, mjúkan, hljóðlátan og skemmtilegan akstur.
Umhverfisvænt og aukin drægni
Við hönnun og þróun Nokian Hakkapeliitta R5 var lögð áhersla á skilja eftir sig minna kolefnisfótspor. Nýtt efnasamband dekksins, Green Trace, veitir frábært vetrargrip, meiri drægni (í rafbílum) og minna viðnám. Minna viðnám sparar eldsneyti og minnkar skaðlegan útblástur. Meira en þriðjungur efnanna sem dekkin eru framleidd úr eru endurnýjanleg og/eða endurunnin.
Hakka Trygging Nokian Tyres í 1 ár
Hakka Trygging® Nokian Tyres er ókeypis viðskiptavini fyrir valin dekk og tryggir að ferðalag þitt verði öruggt og ánægjulegt við allar aðstæður. Tryggingin gildir á öllum Nokian Hakkapeliitta dekkjum. Hakka Trygging® veitir viðskiptavinum Nokian Tyres nýtt samsvarandi dekk án endurgjalds frá viðurkenndum söluaðila Nokian Tyres þar sem upprunalega dekkið varð fyrir óhappi. Ef hægt er að gera við dekkið á öruggan hátt verður því ekki skipt út. Viðgerðarkostnaður er ekki innifalin í Hakka Tryggingu®.
Hakka Trygging® Nokian Tyres gildir í 1 ár frá kaupdegi og er tengd ákveðnum bíl.
Smelltu hér og kynntu þér Hakka Tryggingu® Nokian Tyres.
NOKIAN HAKKPELIITTA R5 ER BESTA VETRARDEKKIÐ
Valmynd
Leitarniðurstöður
Svæði
Finndu næsta MAX1 verkstæði
MAX1 verkstæði eru í eða nálægt eftirtöldum sveitarfélögum:
Aðalsímanúmer: 5157190
Kt.: 701277-0239 VSK.NR.: 11650
Skráðu þig á póstlista
Skráðu þig á póstlista MAX1 og fáðu forskot á fréttir og tilboð.
Skráðu þig hér
EINFALDAR GREIÐSLUR MEÐ PEI
Hægt er að greiða með Pei hjá MAX1 Bílavaktinni. Meira hér.
Fylgstu með okkur
- © Höfundarréttur MAX1
- Persónuvernd
- Skilmálar
- Veftré