Flýtilyklar
Finna dekk
OpnaJeppadekk sumar
Nokian Wetproof SUV
Nokian Wetproof SUV
Nokian Wetproof SUV jeppadekkið. Framúrskarandi öryggi, sérlega hljóðlátt, eldsneytissparandi og endingargott. Nokian Wetproof SUV eru einnig fyrir rafbíla og Hybrid bifreiðar.
225/60R17 Nokian Wetproof SUV - 31.596 kr.
235/55R17 Nokian Wetproof SUV - 31.405 kr.
225/65R18 Nokian Wetproof SUV - 27.590 kr.
215/55R18 Nokian Wetproof SUV - 29.900 kr.
Nokian Wetproof SUV jeppadekkið tryggir framúrskarandi öryggi, er sérlega hljóðlátt, eldsneytissparandi og endingargott. Wetproof er sérhannað sumardekk frá Nokian sem er öruggt og áreiðanlegt. Nokian Wetproof SUV jeppadekkið tryggir framúrskarandi öryggi og hugarró á blautum sem þurrum vegum, einn helsti eiginleiki dekksins er frábær stjórn á blautu yfirborði vega.
Smelltu og spilaðu myndband um Nokian Wetproof SUV jeppadekkið:
Fullkomið jafnvægi á milli hámarks þæginda og framúrskarandi öryggis, Nokian Wetproof SUV er jafn öruggt á þurrum sem og blautum vegum við erfiðar akstursaðstæður. Leyndarmálið á bakvið nýja Wetproof SUV dekkið er tækni frá Nokian sem heitir Dual Zone Safety. Með Dual Zone Safety tækninni blandast saman eiginleikar sem veita öryggi á vegum við fjölbreyttar akstursaðstæður og stuðlar að eldsneytissparandi akstri.
Strangt ferli fyrir fyrsta flokks öryggi
Sumardekk þurfa að vera áreiðanleg og veita hámarks öryggi frá fyrstu vormánuðum til byrjun hausts. Sérþekking Nokian í öryggi og framleiðslu umhverfisvænna dekkja tryggir að Nokian Wetproof SUV er áreiðanlegt sumardekk fyrir jeppa.
Á fallegum sumardögum getur verið auðvelt að gleyma hættum sem leynast á blautum vegum eftir óvænta gróðurskúr. Skyndileg rigningarskýr geta reynst mjög hættulegar þegar vatn safnast í rákir vega.
Samkvæmt könnun Nokian hjá viðskiptavinum sínum er það öryggið sem fólk metur mest við kaup á dekkjum og það er einmitt öryggi sem er kjarninn í ströngu þróunarferli Nokian.
Nokian Wetproof SUV jeppadekkið er frábært sumardekk fyrir þurra eða blauta vegi. Nokian hefur bætt enn frekar grip dekksins í bleytu og aukið þannig öryggið til muna. Þróun Nokian Wetproof SUV hefur tekið um 4 ár og prófaðar hafa verið tugir frumgerða víða um Evrópu til þess að upplifa mismunandi veðuraðstæður.
Dual Zone safety – Fullkomin stjórn við fjölbreyttar aðstæður
Með Dual Zone Safety tækninni í Nokian Wetproof SUV blandast saman eiginleikar sem veita frábært grip, hámarksþægindi, fyrsta flokks öryggi á vegum við fjölbreyttar akstursaðstæður og stuðla að eldsneytissparandi akstri.
Dual Zone Safety tækni Nokian Wetproof er skipt í tvö svæði. Annars vegar Stabilty Zone sem er á hliðum dekksins sem gerir aksturinn ánægjulegri og veitir aukinn stöðugleika, og svo hinsvegar Wet Safety Zone fyrir miðju dekksins sem eykur grip á blautum vegum. Það er svo Responsive Lock tæknin sem hleypir vatni undan dekkinu á blautum vegum og veitir þannig aukinn stöðugleika.
Stability Zone – Hljóðlátt og þægilegt í akstri
Minna veghljóð fæst með einstakri hönnun Nokian á Silent Groove til viðbótar við aukin þægindi. Hönnunin minnkar líka loftmóttstöðuna og kælir um leið yfirborð dekksins. Saman eykur þetta endingu dekksins til muna og þú getur ekið áhyggjulaus lengur.
Á ytri hlið Nokian Wetproof er Silent Sidewall tækni Nokian sem er einstök að því leiti að hún dempar hljóð og titring frá veginum í akstri. Þetta dregur úr veghljóði fyrir ökumann og farþega.
Wet Safety Zone – Hrindir frá sér vatni
Þegar vatn kemst í snertingu við ávallt yfirborð mun það reyna að elta það. Coanda tækni Nokian hrindir burt vatni með því að beina því í viðeigandi rákir og kemur þannig í veg fyrir hættur á blautum vegum.
Nokian Aqua Hybrid eykur enn frekar á öryggið á rigningardögum. Þessi nýja kynslóða dekkjagúmmís er byggð upp til þess að veita frábært grip í bleytu og stuðla að lægri eldsneytiskostnaði.
Gríðarsterk Aramid hliðarstyrking
Nokian Tyres Aramid hliðarstyrking er ný tækni sem eykur endingu dekkja og verndar þau í óvæntum aðstæðum. Efnasamband hliðanna er einstaklega endingargott og inniheldur gríðarsterkar aramíd trefjar. Aramid trefjarnar styrkja hliðarveggi dekksins þannig að það þolir betur utanaðkomandi álag.
Myndband um Aramid hliðarstyrkingu Nokian
Veldu öryggi - Kauptu Nokian gæðadekk!