Rúðuþurrkur
Þurrkublöð eru mikilvæg hvað umferðaröryggi varðar og tjón á framrúðu getur hæglega orðið mikið ef notuð eru ónýt þurrkublöð. Þegar þurrkublöð slitna byrja þau að hreinsa óhreinindi illa af rúðunni og rispa framrúðuna. Þetta veldur skertu útsýni fyrir ökumanninn og skapar hættu í umferðinni.
Hugsaðu um öryggið og vertu ábyrgur ökumaður. Láttu okkur hjá MAX1 kanna ástand þurrkublaða, þér að kostnaðarlausu. Ef þú kaupir rúðuþurrkurnar hjá okkur setjum við þurrkublöðin á bílinn án endurgjalds.
Góð þurrkublöð eru mikilvæg til að hreinsa framrúðu bílsins. Á veturna slettist á rúðuna margþætt efnablanda, t.d. þegar salt, ryk og tjara blandast regnvatni, og á sumrin festast að auki flugur á framrúðunni. Þegar þurrkublöðin verða léleg missa þau hæfileikann til að hreinsa þessi óhreinindi af framrúðunni. Þá vilja óhreinindin frekar dreifast um rúðuflötinn sem dregur úr útsýni og minnkar öryggi við akstur. Um leið eykst hættan á að þurrkublöðin rispi framrúðuna sem dregur enn úr útsýni og getur orðið kostnaðarsamt ef skipta þarf um framrúðu. Léleg þurrkublöð auka líka notkun á rúðupissi því tilhneigingin er að sprauta oftar og meira til að leysa málið.
Pantaðu tíma á netinu
Hafðu það einfalt og þægilegt og hafðu bílinn í topp standi með því að panta tíma á netinu.
BÓKAÐU TÍMA |
AFBÓKA |
Léleg þurrkublöð - ástæður
Ástæður fyrir lélegum þurrkublöðum geta auðvitað verið margar. Þau geta hafa verið of lengi í notkun, blöðin sem keypt voru síðast ekki nægilega góð eða kannski voru rúðuþurrkurnar látnar vinna á mjög óhreinni eða ísaðri framrúðu. Hægt er að lengja líftíma þurrkublaða með því að hreinsa þau reglulega og gamalt húsráð segir að gott sé að nota til þess gamalt kók ( þetta seljum við samt ekki dýrara en við keyptum það).
Önnur leið er að nota tjöruhreinsi (olíuhreinsi) en sumir kvarta yfir því að þetta fari ekki vel með gúmmíið á þurrkublöðunum. Enn aðrir nota ísvara og það jafnvel mýkir upp gúmmíið. Einhverjir hafa notað WD-40 og enn aðrir uppþvottalög. Hreinsun þurrkublaða dugar þó ekki til ef blöðin sjálf eru orðin illa skemmd.
Ódýr þurrkublöð
Ódýr þurrkublöð frá Trico fást hjá MAX1 Bílavaktinni fyrir flestar gerðir bíla. Ef þú ert í vafa um hvaða rúðuþurrkur passa á bílinn þinn, hafðu ekki áhyggjur. Starfsmenn MAX1 ráðleggja þér um rétta stærð þurrkublaða. Þú getur einnig einfaldlega mælt lengd blaðisins. Allar líkur eru á því að sú lengd passi á bílinn þinn. Til að vera viss þá er nákvæma leit að finna á vef Trico.
Hér að neðan getur þú sé töflu yfir lengd blaðanna og verð þeirra.
Trico Force. Flöt Universal þurrkublöð | ||
Vörunúmer | Lengd þurrkublaðs | Verð m/vsk |
TF350L | 350mm | 3.730 |
TF400L | 400mm | 3.730 |
TF430L | 430mm | 3.730 |
TF450 | 450mm | 3.730 |
TF480L | 480mm | 4.117 |
TF500L | 500mm | 4.174 |
TF530L | 530mm | 4.373 |
TF550L | 550mm | 5.008 |
TF550R | 550mm | 5.008 |
TF600L | 600mm | 5.258 |
TF600R | 600mm | 5.258 |
TF650L | 650mm | 5.564 |
TF650R | 650mm | 5.564 |
TF700L | 700mm | 6.235 |
TF700R | 700mm | 6.235 |
TF730L | 730mm | 6.412 |
TF750L | 750mm | 6.612 |
TF750R | 750mm | 6.612 |
TF800L | 800mm | 7.019 |
Hin fjölmörgu nöfn rúðuþurrka
Í daglegu tali er ýmist talað um rúðuþurrkur eða þurrkublöð. Sumir spara sér jafnvel staf og skrifa rúðuþurkur eða þurkublöð, en við getum að sjálfsögðu ekki mælt með því. Enn aðrir kalla rúðuþurrkurnar vinnukonur.
Við hjá MAX1 Bílavaktinni tökum vel á móti öllum, hvaða orð sem menn nota, enda bjóðum við rúðuþurrkur í allar gerðir bíla frá flestum bílaframleiðendum heims, t.d. Toyota, Volkswagen, VW, Chevrolet, Kia, Skoda, Ford, Honda, Renault, Hyundai, Mercedes Benz, Mazda, Nissan, Suzuki, Subaru, Audi, Citroen, Bmw, Volvo, Peugeot, Jaguar, Dacia, Opel, Mitsubishi, Lexus, Isuzu, Porsche, Fiat, Jeep, Dodge, Land Rover, Chrysler og Iveco.
Hafðu samband og láttu okkur um að útvega og skipta um þurrkublöð.