Flýtilyklar
Finna dekk
OpnaJeppadekk harðkorna
NOKIAN HAKKAPELIITTA R5 SUV EV
NOKIAN HAKKAPELIITTA R5 SUV EV
Nokian Hakkapeliitta R5 EV er harðkorna vetrardekk fyrir rafmagns- og Hybrid bíla. Dekkið er frábær kostur á móti nagladekki og þar blandast saman óaðfinnanlegt grip og akstursþægindi.
Nokian Hakkapeliitta R5 EV er harðkorna vetrardekk fyrir rafmagns- og Hybrid bíla sem er einnig fáanlegt fyrir, fólksbíla (R5) og jeppa (R5 SUV). Dekkið er frábær kostur á móti nagladekki og þar blandast saman óaðfinnanlegt grip og akstursþægindi.
Nokian Hakkapeliitta R5 harðkorna vetrardekkið býður uppá áður óþekkt grip á ís, þægindi og aksturseiginleika sem þróaðir voru fyrir norðlægar slóðir. Dekkið er búið framúrskarandi vetraröryggiseiginleikum eftir strangar prófanir og ítarlegar rannsóknir.
- Framúrskarandi grip og jafnvægi í akstri
- Hljóðlátt
- Vistvænt og orkusparandi
Smelltu til að horfa á myndbandið:
Óaðfinnanlegt grip með Nokian Hakkapeliitta R5 EV
Ein af öryggisnýjungum í Nokian Hakkapeliitta R5 EV er endurhannað mynstur dekksins. Nýtt Double Block Grip veitir óaðfinnanlegt grip í vetrarhörkum. Stíf röð af slitlagsblokkum byrjar í miðju dekksins og er skipt í tvennt og færist í átt að axlarsvæði dekksins. Hakkapeliiitta R5 EV er með 40% fleiri slitlagsblokkir en forveri þess og er snertiflötur þess 4% stærri sem skilar sér í betra gripi á hálum götum.
Harðkornadekk með Arctic Grip kristölum
Óaðfinnanlegt grip er tryggt með einstöku Arctic Grip kristölum. Kristölum er blandað saman við slitlagsblönduna og virka eins og innbyggðir pinnar og skapa skarpar, sterkar gripsbrúnir inn í gúmmíinu. Þegar dekkið slitnar með tímanum koma kristallarnir fram og virkja nauðsynlegt grip.
Nýtt mynstur ásamt Arctic Grip kristölunum og hönnun Double Block Grip hefur gerti Nokian kleift að auka öryggi og þægindi í akstri að vetri til. Með nýrri hönnun hefur einnig viðnám dekksins lækkað sem minnkar eldsneytiskostnað.
Nokian Hakkapeliitta R5 EV er hljóðlátt vetrardekk
Nokian Hakkapeliitta R5 EV er sérlega hljóðlátt vetrardekk. Hljóð frá dekkjum geta haft áhrif á akstursánægju og þægindi, lægri hávaði frá dekkjum gerir ferðalagið þægilegra og minnkar þreytu farþega bílsins.
Ný Silent Touch hönnun á mynstri Nokian Hakkapeliitta R5 EV býður uppá stöðugan, mjúkan, hljóðlátan og skemmtilegan akstur.
Umhverfisvænt og aukin drægni
Við hönnun og þróun Nokian Hakkapeliitta R5 EV var lögð áhersla á skilja eftir sig minna kolefnisfótspor. Nýtt efnasamband dekksins, Green Trace, veitir frábært vetrargrip, meiri drægni (í rafbílum) og minna viðnám. Minna viðnám sparar eldsneyti og minnkar skaðlegan útblástur. Meira en þriðjungur efnanna sem dekkin eru framleidd úr eru endurnýjanleg og/eða endurunnin.