Flýtilyklar
Finna dekk
OpnaJeppadekk vetrar
Nokian Hakkapeliitta R3 SUV
Nokian Hakkapeliitta R3 SUV
Nokian Hakkapeliitta R3 SUV er harðkorna vetrardekk fyrir jeppa þar sem öryggi og þægindi blandast fullkomlega saman. Nokian Hakkapeliitta R3 SUV eru einnig fyrir rafbíla og Hybrid bifreiðar.
235/50R19 Nokian Hakkapeliitta R3 SUV - 63.653 kr.
255/40R20 Nokian Hakkapeliitta R3 SUV - 75.052 kr.
Nokian Hakkapeliitta R3 SUV er fullkomin blanda af öryggi og þægindum. Dekkið er byggt upp af Arctic Sense Grip hugmyndafræðinni þar sem áhersla er lögð á stöðugleika, nákvæmni og áhyggjulausan akstur í vetrarfærð. Nokian Hakkapeliitta R3 SUV eru einnig fyrir rafbíla og Hybrid bifreiðar.
Smelltu á myndbandið og lærðu meira um Nokian Hakkapeliitta R3 SUV vetrardekkið
Arctic Sense Grip hugmyndafræðin
Nokian Hakkapeliitta R3 SUV er tilbúið í allar vetraraðstæður norðlægra slóða. Dekkið er byggt upp með mismunandi rákum sem hver og ein virkar sérstaklega fyrir ís, snjó og krapa. Ný gúmmíblandan saman stendur af kristölum úr endurnýjanlegum lífrænum efnum, kristalarnir virka eins og klær sem grípa í yfirborð vegarins.
Smelltu og horfðu á myndbandið
Nokian Tyres Aramid hliðarstyrking
Sérstyrking er í hliðum Nokian Hakkapeliitta R3 SUV vetrardekkinu. Aramid gúmmíblandan er úr aramíð sem er flokkur hitaþolinna og sterkra gervitrefja. Þetta sama efni er til dæmis notað í flugvélar, báta og skotheld vesti.
Smelltu og horfðu á myndband um Aramid hliðarstyrkinguna
Nokian Hakkapeliitta R3 SUV fyrir rafbíla og Hybrid bifreiðar
Rétt dekkjaval getur bætt öryggi bílsins og þægindi í akstri og aukið svigrúm hans enn frekar. Nokian Hakkapeliitta R3 SUV eru einnig fyrir rafbíla og Hybrid bifreiðar. Alhliða vöruúrval okkar sem er yfir 400 dekk, býður upp á einstakt grip og skandinavíska hugarró. Hjá MAX1 færðu Nokian hágæða vetrar- og sumardekk sem eru sérstaklega þróuð og prófuð til notkunar á rafbílum.