Flýtilyklar
Finna dekk
Opna
Sendibíladekk vetrar
Nokian Hakkapeliitta CR4
Nokian Hakkapeliitta CR4
Harðkorna vetrardekk fyrir sendibíla og smárútur sem þurfa að þola meiri burð og hafa meiri stöðugleika.
Hakka Trygging® Nokian Tyres er fáanleg fyrir þetta dekk. Smelltu hér og kynntu þér Hakka Tryggingu® Nokian Tyres.
205/75r16 Nokian Hakkapeliitta CR4 - 40.426 kr.
Nokian Hakkapeliitta CR4 - 49.678 kr.
195/70R15 Nokian Hakkapeliitta CR4 - 32.412 kr.
225/70R15 Nokian Hakkapeliitta CR4 - 38.416 kr.
215/65R15 Nokian Hakkapeliitta CR4 - 37.112 kr.
205/65R16 Nokian Hakkapeliitta CR4 - 38.993 kr.
215/65R16 Nokian Hakkapeliitta CR4 - 41.495 kr.
235/65R16 Nokian Hakkapeliitta CR4 - 48.072 kr.
215/60R17 Nokian Hakkapeliitta CR4 - 51.047 kr.
225/55R17 Nokian Hakkapeliitta CR4 - 57.148 kr.
Harðkornadekk með frábæra endingu
Harðkornadekkið Nokian Hakkapeliitta CR4 á sér leyndarmál sem liggur í gúmmíblöndu þess. Vistvænum, harðkorna kristöllum hefur verið bætt við hina frábæra blöndu, en kristallarnir virka sem naglar þegar kemur að gripi. Þessi nýja viðbót dregur talsvert úr hemlunarvegalengd í hálku, miðað við forvera dekksins, jafnvel þegar ekið er á miklum hraða. Nokian Hakkapeliitta CR4 er harðkorna vetrardekk fyrir sendibíla og smárútur sem þurfa að þola meiri burð og hafa meiri stöðugleika.
Frammistaða Nokian Hakkapeliitta CR4 er framúrskarandi hvort sem er í snjó, á ís eða á blautu yfirborði og hefur dekkið jafnframt frábæra endingu. Gripeiginleikar þess varðveitast samhliða eyðingu dekksins, þó að sjálfsögðu þurfi að huga að dekkjaskiptum þegar mynsturdýpt fer undir 4 mm og snjókornatákn slitmerkingarinnar hverfur af dekkinu, samanber reglugerð um lágmarksmynsturdýpt dekkja.
Gríðargott grip á ís og í snjó
Sérstakar gripklær milli mynsturblokka Nokian Hakkapeliitta CR4 dekksins bæta grip í snjó og á ís, sérstaklega við hemlun og hröðun. Víðari mynsturraufir, staðsettar á öxl dekksins og í miðju þess, virkja mjórri mynsturraufirnar sem eykur grip í mikilli hálku. Krapavörn í formi þríhyrningslaga kraparása ýta í burtu krapa og vatni og koma í veg fyrir að bíllinn fljóti upp á blautu vegyfirborði. Krapavörnin er enn einn eiginleiki Nokian Hakkapeliitta CR4 vetrardekksins sem gerir grip þess gríðargott á ís og í snjó.
Nokian Aramid hliðarstyrking bjargar mannslífum
Nokian Tyres Aramid hliðarstyrking er í Nokian Hakkapeliitta CR4 sendibíladekkinu. Aramid hliðarstyrking er ný tækni sem eykur endingu dekkja og verndar þau í óvæntum aðstæðum. Efnasamband hliðanna er einstaklega endingargott og inniheldur gríðarsterkar aramíd trefjar. Aramid trefjarnar styrkja hliðarveggi dekksins þannig að það þolir betur utanaðkomandi álag, þar með talið holurnar í götum borgarinnar.
Kynntu þér Aramid hliðarstyrkinguna, horfðu á myndbandið:
Hakka Trygging Nokian Tyres í 1 ár
Hakka Trygging® Nokian Tyres er ókeypis viðskiptavini fyrir valin dekk og tryggir að ferðalag þitt verði öruggt og ánægjulegt við allar aðstæður. Tryggingin gildir á öllum Nokian Hakkapeliitta dekkjum. Hakka Trygging® veitir viðskiptavinum Nokian Tyres nýtt samsvarandi dekk án endurgjalds frá viðurkenndum söluaðila Nokian Tyres þar sem upprunalega dekkið varð fyrir óhappi. Ef hægt er að gera við dekkið á öruggan hátt verður því ekki skipt út. Viðgerðarkostnaður er ekki innifalin í Hakka Tryggingu®.
Hakka Trygging® Nokian Tyres gildir í 1 ár frá kaupdegi og er tengd ákveðnum bíl.
Smelltu hér og kynntu þér Hakka Tryggingu® Nokian Tyres.