Flýtilyklar
MAX1 BÍLAVAKTIN STYRKIR KRABBAMEINSFÉLAG ÍSLANDS
MAX1 Bílavaktin og Nokian Tyres afhentu Krabbameinsfélagi Íslands styrk að upphæð 1.700.000 kr. í dag.
Upphæðin safnaðist í október og nóvember en hluti söluágóða Nokian dekkja á þessu tímabili rann til Bleiku slaufunnar, árvekniátaks Krabbameinsfélags Íslands.
Farsælt samstarf
MAX1 og Bleika slaufan hafa átt mjög farsælt samstarf og því var enginn vafi á að endurtaka samstarfið. „Samstarfi MAX1 og Bleiku slaufunnar hefur verið gríðarlega vel tekið undanfarin ár enda þarft málefni. Starfsmenn sem og viðskiptavinir MAX1 hafa líst mikilli ánægju með samstarfið og starfsmenn MAX1 skarta stoltir bleikum bolum á meðan á átakinu stendur. Það er okkur sönn ánægja að fá að vera partur af því að vekja athygli á svo þörfu málefni. Þess má geta að MAX1 og Nokian Tyres hyggja á áframhaldandi samstarf við Krabbameinsfélag Íslands.“ segir Sigurjón Árni Ólafsson, framkvæmdastjóri MAX1 Bílavaktarinnar.
Við þökkum Krabbameinsfélaginu fyrir sérlega ánægjulegt samstarf og að sjálfsögðu viðskiptavinum okkar fyrir frábærar móttökur! Takk!